BAÐHÚSIÐ
Brautarholti 20
105 Reykjavík
S: 515-1900
Hægt er að senda tölvupóst á móttöku Baðhússins, netfang
mottaka@badhusid.is
Baðhúsið var stofnað árið 1994 af Lindu Pétursdóttur
REGLUR:
1. Viðskiptavinir nýta sér aðstöðu Baðhússins alfarið á eigin ábyrgð.
2. Engin ábyrgð er tekin á skóm, fatnaði, símum og öðrum fjármunum.
3. Baðhúsið áskilur sér rétt til að breyta stundaskrá og opnunartíma án fyrirvara.
4. Kort eru ekki endurgreidd
5. Börn eru velkomin á auglýstum barnagæslutíma og eru jafnframt alfarið á
ábyrgð forráðarmanna sinna.
6. Börnum er óheimilt að vera annars staðar en í barnagæslu á meðan á dvöl þeirra
í Baðhúsinu stendur (t.d í tækjasal eða hvíldarhreiðri).
7. Viðskiptavinir skulu hafa aðgangskort sín meðferðis við hverja komu og skrá sig
inn með því að renna því í gegnum aðgangshliðið.
8. Misnotkun á korti leiðir til brottvísunar.
9. Ekki er leyfilegt að halda skápum yfir nótt eða lengur.
10. Hægt er að frysta staðgreidd kort gegn sérstöku frystingargjaldi, lágmark 2 vikur og
hámark 2 mánuðir.
11. KK klúbburinn: Uppsagnarfrestur er 3 mánuðir. Úrsögn skal skilað skriflega
(EKKI rafrænt) á þar til gert eyðublað sem má nálgast í móttöku Baðhússins
og skal það gert fyrir 15 hvers mánaðar.