Þriðjudagur kl. 19:30
Opinn tími fyrir allar konur. Í jógatímum er markmiðið að losa spennu úr líkamanum til þess að ná góðu andlegu og líkamlegu jafnvægi.
Við hefjum tímana á stuttri slökun og öndunaræfingum. Siðan tökum við æfingar til að hita okkur upp áður en við förum í jógateygjur. Í lok tímans er síðan hugleiðsla og slökun.