Innskráning
Notendanafn:
Lykilorð:
Hreinsa

Body Balance

Miðvikudagur kl. 10:00

Í átt að jafnvægi.
BODYBALANCE tengir líkama og sál og mun breyta þeirri tilfinningu sem þú hefur á líkama þínum til framtíðar.

Líflegur tími þar sem þjálfað er eftir tónlist sem skilar þátttakendum afslöppuðum og endurnærðum. BODYBALANCE blandar saman því besta úr austurlenskri þjálfun eins og yoga og tai chi með nýjum æfingum eins og pilates og feldenkrais.

Virk öndun, einbeiting og vandlega útfærðar teygjur, hreyfingar, stöður byggðar upp á andlegum tíma framkalla aukið samræmi og jafnvægi líkama og sálar.

BODYBALANCE er styrkjandi og tónar vöðva líkamans auk þess að losa um stífa og auma vöðva. Þú munt standa beinni, finnast sterkari, verða liðugri auk þessa að verða meðvitaðri bæði andlega og líkamlega.

Tíminn hentar öllum og við mælum sérstaklega með BODYBALANCE fyrir þá sem vilja losa um stífa vöðva, stress og streytu sem leggjast í auknum mæli á einstaklinga. Vinna þannig gegn slæmum fylgifiskum nútíma lifnaðarhátta.

“Komdu í BODYBALANCE ef þú villt slá tvær flugur í einu höggi – þjálfa líkama og sál"
10:00 - 11:00
Freyjusalur
Andreea