Nuddstofa

Tímapantanir fara í gegnum nuddara Baðhússins

Hafðu samband og ég finn hentugan tíma fyrir þig.



Unnur Rún Eðvaldsdóttir
Gsm. 841-2107
Netfang: unnur@badhusid.is


Nuddstofan - betri líðan og betra líf.
Þú getur slakað fullkomlega á í höndum sérhæfðra nuddara okkar sem sjá um að eyða allri spennu og stífum vöðvum og fínstilla líkama þinn með þeirri tegund af nuddi sem hentar þér best, en boðið er upp á margar mismunandi og áhrifaríkar meðferðir. Hægt er að velja um partanudd (30. mínútur) eða Heilnudd sem tekur 50. mínútur.


{Klassískt nudd}
Nudd að sænskum hætti sem er afar slakandi. Leitast er við að mýkja vöðva, draga úr spennu og þreytu og örva blóðrásina. Losar um spennu og bólgur.
50 mínútur.

{Djúpvefjanudd}
Djúpt svæðanudd þar sem unnið er á slæmri vöðvabólgu og mjög stífum vöðvum, í bland við slökunarheilnudd.  50 mínútur.

{Ilmkertaolíunudd}
Ný meðferð á Íslandi , eingöngu í Baðhúsinu.
Lúxus-dekurmeðferð fyrir líkama og sál.  Einstök slökunarmeðferð sem veitir alhliða vellíðan og upplifun.
Einstök slökunarmeðferð sem hönnuð er sérstaklega af snyrtifræðingum Baðhússins.  90 mínútur.
Ilmkertaolíunnd smella hér

{Meðgöngunudd}
Frábært slökunarnudd fyrir óléttar konur. Unnið er sérstaklega á þreytu og spennu í fótum og baki. Þetta nudd er fyrir konur sem eru komar 3 mánuði eða lengra á leið.   50 mínútur.

{Slökunarnudd}
Hægar og mjúkar strokur og spennan líður úr líkamanum. Nauðsynlegt fyrir uppteknar konur í nútíma samfélagi.  50 mínútur.

{Sogæða- og cellulitenudd}
Kröftug og hreinsandi meðferð sem losar líkamann við uppsafnaðan vökva og bjúg.  Unnið er á yfirborði húðar eftir ákveðnu kerfi sem miðar að því að hreyfa við sogæðakerfi líkamans og hraða hreinsun úrgangsefna úr líkamanum.  Meðferðin dregur úr appelsínuhúð og örvar sogæðakerfið. 50 mínútur.

{Sportnudd}
Djúpt nudd sem örvar vel blóðrásina. Vinnur á vöðvabólgu og spennu.
Afar hentugt fyrir konur sem stunda líkamsrækt af krafti. 50 mínútur.


Afsláttur fyrir KK konur, 10% fyrir Grunnáskrift og 15% fyrir Eðaláskrift

Nuddkort 5 skipti 5% aflsáttur
Nuddkort 10 skipti 10% aflsláttur 
Verð eru birt með fyrirvara um villur og verðbreytingar


Sjá reglur um bókanir