Les Mills

Árangursrík æfingakerfi.

Les Mills æfingakerfi eru skipulögð og þróuð á Nýja Sjálandi. Þetta eru æfingakerfi fyrir alla aldurshópa og henta öllum einstaklingum, hvort sem þeir eru í góðu formi eða vilja koma sér í form. Eingöngu löggiltir þjálfarar hafa leyfi til þess að kenna samkvæmt þessum kerfum og eru allar æfingar eins útfærðar hjá öllum þjálfurum svo þú veist að hverju þú gengur í tímunum. Kraftmiklar og drífandi æfingar; þú nærð alvöru árangri á skömmum tíma með Les Mills.

Í Baðhúsinu er boðið uppá eftirfarandi kerfi, þó breytilegt eftir stundaskrám:


  • BODYPUMP
  • BODYSTEP
  • BODYCOMBAT
  • rpm
  • BODYATTACK
  •  


     



      Fljótlegasta leið í heimi til að komast í form.

      Einfaldlega vinsælasti hóptími í heiminum fyrr og síðar. BODYPUMP er sannarlega byltingarkenndur hóptími þar sem lóð og stangir eru notaðar til þess að styrkja og tóna hvern einasta vöðva líkamans. Í þessum tímum nýturðu alla kosti þess að þjálfa líkamann með lóðum í skemmtilegu andrúmslofti fullu af orku og hvatningu.

      BODYPUMP er bæði fyrir konur og karla og í hann geta allir farið, byrjendur sem og þeir sem lengra eru komnir. Engin hopp eða högg á líkamann, aðeins hörkuátök, léttar stangir með lóðum sem auðvelt er að breyta á þyngdum. Unnið er með alla stóru vöðvahópana.

      " Þú myndir aldrei taka svona vel á því í tækjasalnum"








      Tími sem slær í gegn.

      BODYCOMBAT hefur sannarlega slegið í gegn. 60 mínútna tími í takt við tónlist sem saman stendur af hreyfingum og æfingum sem koma úr þjálfun í sjálfsvörn, eins og td. karate, Tai Chi, kickboxing og Tae Kwondo.

      Faglega settur saman tími þar sem frábær tónlist býr til ótrúlega orku í hverjum BODYCOMBAT tíma þar sem allur líkaminn er byggður upp og barist er við kaloríur og kólesteról.

      Tíminn er ráðlagður fyrir alla aldurshópa og styrkleika. BODYCOMBAT er uppörvandi og alhliða þjálfun sem gerir þig “til í slaginn” á skömmum tíma.

      “Mættu í BODYCOMBAT ef þú villt skemmtilega upplifun af bardagalist, karate, tae kwon do, box og tai chi í 60 mínútna tíma“.








      Stígðu á pall!

      BODYSTEP hefur farið sigurför um heiminn og má með sanni segja að BODYSTEP hafi endurlífgað pallatímana. Frábær skemmtun sem gerir rass og læri stinn á met hraða.

      Með því að nota einfalda rútínu með hreyfingum sem auðvelt er að fylgja eftir og örvandi tónlist, gerir BODYSTEP þér kleift að æfa af þinni ákefð án þessa að þú þurfir að hugsa of mikið. Einfaldar en samt krefjandi forskrifaðar æfingar eru ávísun á hnitmiðaðann, orkumikinn, brennslutíma. Tíminn hentar báðum kynjum, öllum aldri og styrkleikum.

      Þú stjórnar algjörlega hversu hart þú leggur að þér með því að hafa pallinn í þeirri hæð sem hentar þér hverju sinni og þar með gerir æfinguna léttari eða erfiðari.

      Í BODYSTEP ertu að brenna fullt af kaloríum, styrkja vöðva (sérstaklega rass og læri) og eykur þol.






      Velkomin í kaloríubrennslu

      Viljirðu brenna kaloríum hratt, þá er RPM tíminn fyrir þig – mesti brennslutími sem völ er á.

      Skemmtilegur og sportlegur þolþjálfunartími sem eyðir kaloríum á met hraða – upp í 900 í einum tíma! Þú upplifir hópefli og hjólar eftir bestu hjólakerfum sem búið er að setja saman í takt við skemmtilega og uppörvandi tónlist. Þessi tími er stundum kallaður “Rokktónleikar á hjólum”

      RPM eykur fljótt úthald þátttakenda og styrkir sérstaklega vöðva í neðri hluta líkamans. “Afstressun” er þó einn af stóru kostum RPM tímanna.

      “Það skiptir ekki máli á hvaða hraða þú ert að hjóla, þú nærð árangri bara á að vera á staðnum”









      Allt annað er bara upphitun

      BODYATTACK er fyrir þá sem vilja virkilega komast í gott form - hörku puð, mikil brennsla - tími sem færir þig út á ystu nöf.

      Þetta er tími sem við mælum með fyrir þá sem eru í meðal eða góðu formi. BODYATTACK er 60 mínútna þoltími með (interval), hléæfingum þar sem settar eru saman hörku þol- og styrktaræfingar. Drífandi tónlist gefur rétta andrúmslotið sem hrífur fólk áfram, hoppandi, sparkandi og hlaupandi, þannig að þátttakendur eru stöðugt að ná hámarksafköstum.

      Í BODYATTACK styrkirðu hjartað, lungun og bætir þolið til muna auk þess að komast í mjög gott form með auknum styrk.

      Æfingarnar eru einfaldar, þannig að BODYATTACK er kjörinn tími fyrir þá sem vilja svitna vel og styrkja líkamann án þess að þurfa að hugsa of mikið.