Afró
Eins og áður eru það kennarar úr Afróskóla Sigrúnar Grendal sem sjá um afróstuðið í Baðhúsinu.
Þetta eru metnaðarfullir tímar fullir af orku og gleði. Kenndir eru ósviknir afrískir dansar sem aðallega koma frá Gíneu í Vestur Afríku og löndunum þar í kring. Nemendurnir læra ákveðinn dans í hverjum tíma og fræðast um leið um sögu hans og uppruna.
Auðvitað er dansað við lifandi trommuslátt í hverjum tíma því annars væri þetta ekki alvöru afró.
Við erum heppin að hafa með okkur frábæra kennara og trommara sem vita svo sannarlega hvað þau eru að gera.
Dansinn er kraftmikill og stundum grófur og orkufrekur en einnig seiðandi og ótrúlega spennandi.
Afródansinn kennir okkur konum að meta kvenleika okkar og þora að sýna hann.
Í Afríku eru jú flottustu dansararnir með mjúkar línur á réttum stöðum og eru svo sannarlega stoltar með það.
Í afró er það ekki bara líkaminn sem svitnar og brennir miljón kaloríum
heldur kemst sálin á flug og fyllist gleði og orku sem við vissum jafnvel ekki að við ættum til.
Allir geta dansað afró og allir ættu a.m.k að prófa það.
Afró er fyrir síunga á öllum aldri og öllum þyngdarflokkum.
Afrótímar eru fyrir KK-konur.


Sjáumst í næsta afrótíma.
Þú sérð ekki eftir því.
Sigrún Grendal, afrókennari.