Innskráning
Notendanafn:
Lykilorð:
Hreinsa

Þú þarft ekki að fitna í fríinu
19.6.2011

Hér má lesa nokkur góð ráð til að hafa í huga áður en lagt er af stað í fríið.


 

Einföld ráð til þess að fylgjast með því sem maður lætur ofan í sig 
Eftir Michele Stanten, Prevention 


Spurning: Hvernig kemst ég hjá því að bæta á mig kílóum í sumarfríinu án þess að neita mér um of mikið? 


Svar: Það er ekki nærri því eins gaman að vera í fríi ef maður getur ekki notið þess að bragða á matnum á staðnum.  Það er allt í lagi að dekra svolítið við sjálfa sig, þú hreyfir þig líklega meira á móti vegna þess að þú gengur meira og ferð í skoðunarferðir. En farðu samt ekki yfir strikið.  Ein eða tvær stórar máltíðir á góðum veitingastað og þú hefur náð aftur kaloríunum sem þú brenndir. En það er hægt að halda þyngdinnií skefjum


Hér að neðan eru sex aðferðir til að  halda kaloríunum í skefjum svo að það eina fyrirferðar mikla
sem þú kemur með heim verður í ferðatöskunni þinni. 


Gættu að því sem þú lætur ofan í þig á flugvellinum

Varastu að troða í þig feitum hamborgurum og fitandi kökum áður en þú ferð í loftið. Taktu með þér samloku (eða kauptu hana) úr grófu brauði, hnetur og appelsínu. Sparaðu kaloríurnar fyrir eitthvað virkilega gott eins og smjördeigshorn í París eða rjómalagaða humarsúpu á ströndum Maine.


Farðu í leikinn heilbrigðislögga, óhollustulögga

Þegar þú ert komin á staðinn skaltu fá þér almennilegt pasta. Þegar ég panta eitthvað alveg svívirðilegt borða ég helminginn af disknum og skipti svo um disk við manninn minn sem hefur samþykkt að panta hollasta en samt bragðbesta matinn, grillaðan silung.


Ímyndaðu þér að þú sért matarrýnir

Ekkert bragðast betur en fyrsti bitinn, líttu á fríið sem bragðlaukaögrun. Í stað þess að panta þér sérstakan eftirrétt skaltu fá að smakka ostaköku vinar þíns og smakka á ísnum hjá krökkunum og hætta svo.


Engin hlaðborð

Forðastu veitingastaði sem gera út á það að kýla vömbina. Ef þú ferð á veitingastaði sem gera út á hlaðborð er alveg öruggt að góður ásetningur fer út um þúfur. Þeir bjóða upp á hollan mat inn á milli en þú ert miklu viljasterkari en ég ef þú getur borgað 1.500 kall og sleppt beikoninu og eggjunum, gratíneraða kjúklingnum, hörpudisknum og kartöflunum og þessari hrikalegu súkkulaðiköku og haldið þig við skammt af grilluðum kjúklingi með grænmeti í staðinn.


Dveldu í íbúð frekar en herbergi

Rannsóknir hafa sýnt að því oftar sem þú borðar úti þeim mun líklegri ertu til að fitna vegna þess að á veitingahúsum hleður þú á þig kaloríum sem erfitt er að koma auga á, eins konar faldar kaloríur. Þess vegna skaltu reyna að leigja þér íbúð með eldhúsi. Það kann að kosta aðeins meira en þú sparar heilmikið á móti með því að elda sjálf. Miðaðu að því að útbúa allar máltíðir dagsins í einu og gerðu innkaupalista í samræmi við það í flugvélinni á leið til áfangastaðar. Rífðu part af innkaupalistanum handa hverjum og einum í fjölskyldunni og deildu þannig og drottnaðu í búðinni á leið til áfangastaðar.


Ekki hanga aðgerðarlaus

Ef þú ert enn að undirbúa sumarfríið gætirðu velt fyrir þér að fara í göngu eða hjólreiðaferðir. Það er lítið vit í því að liggja í sólinni allan daginn. Því fleiri kalóríum sem þú brennir í ferðinni þeim mun minni áhyggjur þarftu að hafa þótt þú fáir þér einn og einn pin~a colada.

Góða ferð!