Innskráning
Notendanafn:
Lykilorð:
Hreinsa

Kláraðu æfingu dagsins eldsnemma
10.6.2012

Tabata undir stjórn Hönnu einkaþjálfara kl. 06.15, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Þrátt fyrir að það geti verið erfitt að koma sér fram úr rúminu þetta snemma og sér í lagi á þessum árstíma,
þá vill Hanna þjálfari hvetja þig eindregið til að mæta. 
Þér mun líða mjög vel, eftir að hafa tekið á því
og þú getur svo sannarlega farið með bros á vör út í daginn, 

og búin með æfingu dagsins þetta snemma.
 
Tabata eru vinsælir tímar, slástu endilega í hópinn.  Hanna mætir fyrir þig, komdu því og vertu með.



Lýsing á tíma:
Styrkur, brennsla, snerpa og þol - allt í einni þjálfun TABATA
Tabata byggir á átökum í 20 sekúndur og hvíld í 10 sekúndur, þetta er svo endurtekið 8 sinnum. Allt að 8 æfingar eru gerðar í hverjum tíma. Tabata þjálfarar okkar sjá til þess að hver og ein þjálfi að ystu mörkum en það er nauðsynlegur þáttur til að ná árangri.

-Tabata brennir fitu -Tabata eykur súrefnisupptöku -Tabata eykur þol -Tabata eykur styrk -Tabata eykur ákveðni og viljastyrk