Það er upplagt að drífa sig í góðan hot jóga tíma núna meðan veðurfarið er eins og raun ber vitni
og fara svo í heita og góða gufu á eftir.
Hver vill ekki aðeins meiri hlýju í kroppinn?
Bjóðum upp á hot jóga tíma sex daga vikunnar. Sem dæmi þá eru 2 heitt jóga tímar á laugardögum.
Sá fyrri kl. 10.30, kennari Unnur og sá síðari kl. 12.00, kennari Ingibjörg
og er hann aðeins fyrir KK konur.
Salur: Bellusalur.
Heitt jóga er góð leið til að efla jafnt andlega sem líkamlega heilsu.
Tímarnir eru kenndir í sér upphituðum sal í um 38 -40 stiga hita.
Hitinn í salnum hjálpar til við að hita líkaman upp fyrr til að gera æfingarnar dýpri og árangursríkari.
Við minnum á skráningu í tíma merktir KK-lok,
sjá nánar hér.
Til að skoða stundaskrá nánar, smella hér.