Minnum KK konur á Aðhaldsnámkeið og Heilsuátak!
11.9.2010
Við minnum á að
Aðhaldsnámskeið og Heilsuátak eru innifalin í áskrift að
KK klúbbnum. Ekki er selt sérstaklega inn á þessi námskeið.
Þú getur farið á milli námskeiðanna eins og þér einni hentar, einn daginn farið á lokað námskeið að morgni, næsta seinnipart og svo koll af kolli. Þetta er því mikið frelsi þar sem þú ert ekki bundin á ákveðnum tíma heldur mætir þegar þér hentar.
Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig í tíma í gegnum netfang
skraning@badhusid.is.Ekki verður nauðsynlegt að skrá sig oftar en einu sinni í morguntímann, aðeins í aðra tíma.Nánari upplýsingar um skráningu má sjá með því að
smella hérÞessir tímar eru fyrir
KK konur og eru innfaldir í áskrift. Annarsstaðar kosta sambærilegir tímar tugi þúsunda. Ef þú vilt breyta almennu korti yfir í KK hafðu þá endilega samband við okkur í gegnum
kk@badhusid.is og við finnum út úr því fyrir þig.
Hér að neðan eru stuttar útskýringar á þessum tímum, Aðhaldsnámkeiði og Heilsuátaki. Við erum hér til að aðstoða þig í átt að betri heilsu.
Hlökkum til að sjá þig í þessum tímum!
Á Heilsuátaki er lögð áhersla á heilbrigðan lífsstíl, reglulega hreyfingu og heilsusamlegt mataræði. Hingað beinum við oft konum sem eru að fara af stað eftir einhvern tíma. Góð brennsla, einföld spor, og mikið að styrktaræfingum.
Aðhaldsnámskeið er fyrir konur sem hafa það að markmiði að vilja létta sig. Við setjum engan ramma með hverjar mega mæta en beinum konum sem þurfa að létta sig meira en örfá kíló. Hér færðu mælingar og stuðning. Góð brennsla, einföld spor, og mikið að styrktaræfingum