Innskráning
Notendanafn:
Lykilorð:
Hreinsa

Jóga fyrir barnshafandi konur-og mæður
3.9.2010

MammaShanti jógatímarnir eru endurnærandi stund fyrir verðandi mæður og mömmur með krílin sín.



MammaShanti meðgöngujóga

Að stunda jóga á meðgöngu hjálpar verðandi móður að takast á við þær miklu breytingar sem verða á líkamanum á þessum tíma. Jóga er ekki bara líkamsrækt heldur hefur mikil áhrif á andlega líðan og gefur ró og innri styrk.

Jóga hentar barnshafandi konum sérstaklega vel þar sem mjúkar hreyfingar og einfaldar æfingar hjálpa verðandi móður að styrkja líkama sinn og losa um uppsafnaða spennu. Í tímunum eru einnig kenndar öndunaræfingar sem gagnast móðurinni bæði á meðgöngunni og í fæðingunni sjálfri.

Tímasetning:
Hópur 1 – mánudagur og miðvikudagur kl 12:00
Hópur 2 – mánudagur og miðvikudagur kl. 16:15



MammaShanti mömmujóga
Ástand kvenna er mjög mismunandi eftir meðgöngu og eru jógatímarnir fyrst og fremst hugsaðir sem fyrstu skrefin í því að byggja upp líkamlegan styrk og auka orku eftir fæðinguna. Þetta er einnig tilvalið tækifæri til að hitta aðrar mæður með ungbörn.

Tímarnir eru fyrst og fremst fyrir móðurina en börnin eru velkomin með í tímann, taka stundum þátt í æfingunum eða hvíla sig á dýnu við hliðina á móður sinni á meðan. Miðað er við að börnin séu 6-8 vikna eða eldri.

Tímasetning: Mánudagar og miðvikudagar kl 9:45

*Tíminn er ekki á vegum Baðhússins og því ekki opnir almennum Baðhúskonum

Kennari: Eva Rún Þorgeirsdóttir jógakennari

Skráning og fyrirspurnir sendist á eva@mammashanti.is

Nánari upplýsingar má finna með því að smella hér: MammaShanti í Baðhúsinu

og inn á www.mammashanti.is