Innskráning
Notendanafn:
Lykilorð:
Hreinsa

Flamenco fyrir vinkonur á sunnudögum
25.9.2010

Komdu í Flamenco dans á sunnudögum kl.10.15, og taktu vinkonu með!
Þessi tími er opinn fyrir allar konur
en KK konur geta boðið vinkonu með FRÍTT í þennan sunnudagstíma, og í pott og gufu á eftir. 
Það er auka 3500 kr. bónus á viku, fyrir KK konur.
Kennari er Minerva.

Njóttu þín á sunnudagsmorgni ásamt góðri vinkonu, og taktu suðræn danspor inn í nýja viku.




Um Flamenco:
Flamenco dansinn kemur upprunalega frá Austurlöndum, sígaunar báru hann til Spánar frá Arabíu og Indlandi.
Suður-Spánn var miðstöð kaupmanna og sjófarenda fyrr á öldum og þar með segull á ólíka menningarstrauma.
Flamenco-dans þróaðist svo áfram á Spáni og varð hluti af menningunni.
Nafnið er talið komið til vegna þess að fólki þótti limaburðurinn minna á hreyfingar flamingó-fugla.