Innskráning
Notendanafn:
Lykilorð:
Hreinsa

Að æfa á tóman maga, já eða nei?

7.8.2012 | Linda Pétursdóttir


Þekktur siður hjá þeim sem vilja grenna sig hratt er að æfa á tóman maga. Þetta getur leitt til þess að gengið er of hratt á orkubirgðir líkamans.

Sá tími sem mælt er með að æft sé á tóman maga er um 40 mínútur; ef farið er yfir þau mörk er hætta á því að líkaminn noti prótein úr vöðvum sem orkugjafa í stað fitu.

Ef æft er á tóman maga þarf að gæta sérstakrar varúðar af því það eykur líkur á sykurfalli sem lýsir sér í köldum svita, yfirliðstilfinningu, fölri húð, ógleði, skjálfta og jafnvel meðvitundarleysi. Ef þú finnur fyrir þessum einkennum gæti verið hjálplegt að borða strax fæðu sem inniheldur mikinn sykur eins og súkkulaði, hunang eða sykraða drykki, enn betra er þó að borða kolvetnaríka máltíð.

Mundu að það er mikilvægt að flýta sér hægt til þess að ná tilætluðum árangri. Þú þarft að vera þolinmóð, ákveðin og þrautseig til þess að ná markmiðum þínum án þess að stofan heilsu þinni í hættu.

Þýtt úr erlendu tímariti-ÞSI.