Ekki sleppa úr æfingu. Hér er hvers vegna.
13.6.2012
|
Linda Pétursdóttir
Þegar þú ert þreytt.
Langur dagur í vinnunni og þú ert komin heim, þá er það síðasta sem þú nennir að gera að fara aftur út og keyra í ræktina. Pizza og snakk fyrir framan sjónvarpið hljómar þá eflaust sem vænlegri kostur.
Ef þú situr lengstan tímann í vinnunni muntu finna fyrir þreytu. Kannski er það líkaminn að kalla á hreyfingu. Gerðu það að vana þínum að klára æfingu dagsins áður en þú ferð heim og slakar á.
Það er vissulega nauðsynlegt að eiga hvíldardaga en ekki nota "Ég er svo þreytt" afsökunina á hverjum degi.
Þegar þér er illt í bakinu.
Ef þú hefur æft af kappi í nokkra daga, þá er í lagi að taka einn til tvo daga í frí til að jafna sig.
Ef þér er hinsvegar illt í bakinu að jafnaði skaltu gera eitthvað í því. Gerðu auðveldari æfingar eins og að ganga eða fara í jóga. Bættu kviðæfingum inn í æfingaáætlun þína. Það mun styrkja kjarnann þinn og hjálpa við að styðja við bakið og líkamsásýnd þín verður fallegri. En leitaðu álit læknis ef verkurinn heldur áfram.
Þegar eitthvað er athugavert við matarvenjur þínar.
Ef þú borðar of mikið, eða of lítið, gæti það ýtt undir að þú nenntir ekki á æfingu. Ef þú kemur heim með garnagaul þá gæti þig frekað langað í sætindi eða stinga þér á kaf í snakkpokann heldur en að fara út að hlaupa. Mundu því að skipuleggja hvenær þú ætlar að æfa, taktu frá tíma til þess og máltíðir þar í kring. Hætta er á blóðsykurfalli ef það líður langt á milli máltíða, þannig að vertu dugleg að fá þér reglulegar litlar og hollar máltíðir, því við blóðsykurfall verður þú þreytt. Frábært að taka með sér hádegismat eða millimál í vinnuna t.d., epli, brauðsneið, möndlur, gulrætur, osfrv. Ef þú ert með fyrirfram ákveðna áætlun eru meiri líkur á að þú farir eftir henni heldur en að mæta eingöngu þegar tími vinnst til. Reynslan hefur sýnt að það virkar sjaldnast.
Mælum ætíð með því að þú fáir heilsufarsskoðun hjá lækni áður en þú byrjar æfingaáætlun, sér í lagi eftir langt hlé eða veikindi.
Gangi þér vel.