Innskráning
Notendanafn:
Lykilorð:
Hreinsa

Engar töfralausnir

3.5.2012 | Linda Pétursdóttir

Viltu sjá árangur?

Ef þú ert ekki að sjá og finna árangur á því sem þú ert að gera,
er kominn tími til að skoða hvað það er sem er ekki að virka.
Ég mæli alltaf með því að gera skuldbindingu við sjálfa sig og taka frá tíma til þess að rækta líkamann.
Og það eru engar töfralausnir sem virka til langframa.

Við vitum að við höfum allar jafnmarga tíma í sólarhringnum og höfum flestar, ef ekki allar, nóg fyrir stafni.
En heilsan þarf að vera í forgangi, því án hennar missum við lífsgæði sem eru svo mikilvæg.

Ég hvet þig því til að gera skuldbindingu við sjálfa þig, og gefast ekki upp. Settu afsakanirnar allar í ruslið
og drífðu þig af stað.  
En mundu að það eru engar töfralausnir sem duga, heldur það að mæta í ræktina, sýna staðfestu og gefast ekki upp.